3.11.2008 | 13:49
Agalega sniðugt
Fékk þessa flugu í höfuðið að það væri best í stöðunni í þjóðfélaginu núna að hætta bara að borga reikningana til að eiga fyrir öllu því sem ég get ekki verið án á mínu heimili. Til að verða ekki auralaus hugsanlega á næstu mánuðum. Fór svo að velta þessu agalega mikið fyrir mér og sá að þetta var sú agalegasta hugmynd sem hægt væri að fá. Hvar lendi ég, jú eftir nokkra mánuðu yrði íbúðin mín boðin upp og seld hæstbjóðanda, sem mjög líklega fengi hana á hálfvirði miðað við markaðsverð fyrir hrunið mikla og þá sæti ég uppi með mismuninn á skuldinni og þeirri greiðslu. Ég sjálf þarf alltaf að gera skil á mínu. Svo ég ákvað að halda bara áfram að borga borga borga og eignast ekki neitt. Agalega sniðugt mar.


drhook
sp






Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.