18.4.2010 | 20:53
svíkjast undan
Það kom til mín í hugsun að skorast undan og flytja/flýja af landi brott og jafnt þeirri kom önnur hugsun að ahh nei þá væri ég að svíkja... jahá svíkja hverja og hvað? En mikið er það nú samt gott að sú tilfinning, að þá væri ég að svíkja, lét kræla á sér því hún staðfestir þá að ég sé ennþá raunveruleg en ekki tilfinningalaust bligðunarlaust svikult og ég á bara ekki til nógu heildrænt lýsingarorð yfir svikarana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2010 | 17:11
hugrenning dagsins
Um það skal ritað sem fyrst kemur fram í hugann þegar byrjað er að slá á takkana. Það rignir og það ekkert smá og hugurinn fer þá oft að reika því ekki nennir maður að vera úti. Hversu ljúft það getur verið að hjúfra sig í teppi og hlusta á dropana lemja þakið er ekki alltaf metið að verðleikum. Maður þarf að stilla sig inná að það sé ljúft, því auðvelt er að tuða yfir regninu og ergja sig frekar en gleðja. Ég er á táslunum inni með heita fartölvuna í holunni minni og ylinn leiðir líka upp í úlnliðina meðan ég pikka inn orðin. Regnið lemur þakjárnið og annað slagið heyrist í syninum smá uml eða tuð yfir lærdómnum. Bara notalegt að ýminda sér og undir svona kringumstæðum má maður leifa þreitunni að seitla inn og sækja sér teppi til að kúra undir, bara smá stund, því nætursvefninn var í styttra lagi síðustu nótt.
Ef mig dreymir, þá skal vera fjör,
Bryndís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2008 | 13:49
Agalega sniðugt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 00:22
Viltu ís Björn?
Er það bara ég eða heitir annar hver maður í dag, Björn? Og það má ekki kallann "Bjössi", algjört tabú. Birnir, Birna og Bjarnar eru heitustu nöfnin.
Maður að nafni Björn fór út með strönd í miklu frosti og sótti sér rekavið. Hlóð honum á kerruna og keyrði heim. Þetta tók of langan tíma svo heimafólkið hélt að ís hefði tafið Björn og spurðu þegar hann loksins kom heim, var þarna ís, Björn?
Hann hélt nú ekki og tók að losa kerruna. Sumum fannst Björn of stórtækur í rekaviðasöfnun og spurðu, ætlarðu þetta til skógar, Björn?
Hann hélt nú ekki og tók að kljúfa viðinn. Einn vildi hjálpa til og spurði, má ég gera smá, Björn?
Hann hélt nú ekki og tók að hlaða í stafla en það vildi ekki betur til en staflinn fór að halla. Þá leit Björn upp á félaga sína og rak upp ofsahlátur og sagði: Það mætti halda ég væri einhver Hallbjörn!
2.5.2008 | 01:00
Þjóðarbú
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2008 | 20:52
sunnudagur, frídagur
Hef ekki getað verið í fríi flesta sunnudaga á árinu og finnst það leitt. Hef óstjórnlega löngun til að óska mér þess að gamli tíminn haldi velli hvað þetta varðar og sunnudagsfrí séu heilög. Þá var farið í sparifötin og mætt í kirkju og þeir sem áttu um langan veg að fara nýttu tækifærið og hittu aðra sér til skemmtunar eftir messuna og ræddu málin eða hlupu um. En ég var s.s. að vinna í dag. Í einu af þessum stóru söluhúsum landsins. Þar úir og grúir af allskonar verslunum og kaffihúsum og mikið afskaplega gaman hjá öllum, og mér líka, en bara þessi tilfinning, ekki á sunnudegi. Það er eitthvað annað að fara á skíði, en þá þurfa það að vera gönguskíði annars þarf einhver annar að vera að vinna til að reka skíðalyfturnar. Líka gaman að synda, og þá aftur þarf einhver annar að vinna og afgreiða mig. Næst þegar ég verð í sunnudagsfríi fer ég bara í bústað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 16:47
Sól úti sól í sinni.
Mikill gleðigjafi er nú þessi gríðarstóri eldhnöttur þarna langt út í geymnum. Daginn farið að lengja svo um munar og það gerist svo hratt, svo gaman að vakna og finna sólina verma sig í gegnum glerið. Liggja fyrir innan og láta varmann líða um sig allan. En svo þarf að erindast út og þá er bara ennþá skítkalt og það allverulega í skugganum. En einhvernveginn er nú samt hlýrra í sinninu og tilhlökkunin um að veturinn lætur undan sumri áður en langt um líður er mjög sterk.
Og hvað á að gera í sumar, er hugsun sem þarf að skoða og skipuleggja sem fyrst að sumra mati á meðan aðrir láta sumarið koma, líða, fara. Ó.. er það búið strax" er einhver leiðinlegasta tilfinning að hausti, já en ég ætlaði að.... Einmitt, það þarf að skipuleggja hverja einustu helgi sumarsins til að ná að gera allt þetta, ég ætlaði dæmi. Gæti verið að þrátt fyrir gott skipulag og þétta dagskrá yfir sumarið að þá kemur þessi hugsun samt og breytist í að við óskum eða jafnvel og nánast heimtum lengra sumar, fleiri helgar, ekki vetur strax, EKKI STRAX. Þá er það hinn endinn á dæminu. Ætla sér ekki um of. Plana minna, færri viðburði og eiga FRÍ í fríinu, og geta litið afslappaður á dagatalið í haust og hlakkað til að fá enn og aftur nýja árstíð.
Ég hlakka til, yfir og út
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



drhook
sp





